Í hverju er það fólgiðað vera frímúrari?
Frímúrarar leggja rækt við sjálfa sig á grundvelli bræðralags og jafnréttis. Þeir stunda reglulega fundi sem er eru mjög formlegir og klæðaburður til samræmis við það. Á fundum fara fram vígslur og þar eru flutt erindi um starfið og mannrækt. Skyldumæting er á fundi nema brýnar aðstæður hindri komu. Að loknum fundi setjast systkin saman og eiga góðar samræður á meðan þau njóta veitinga. Systkin greiða félagsgjöld tvisvar á ári og auk þess vígslugjöld þegar þau hljóta framgang innan Reglunnar. Gjöldum Samfrímúrarareglunnar er stillt í hóf svo þau ættu ekki að standa í vegi fyrir aðild flestra. Eins og að framan greinir er klæðnaður formlegur og er í grunninn svört jakkaföt, smóking eða dragt og hvít skyrta. Karlmenn ganga með svarta slaufu eða svart bindi. Starfið fer að mestu fram yfir vetrarmánuðina, frá september og fram í byrjun maí.
Flestar stúkur stunda einnig óformleg félagsstörf utan Reglunnar, svo sem ferðir á söfn, um landið og jafnvel á áhugaverða staði erlendis. Þátttaka í slíku er að sjálfsögðu frjáls eftir vilja og getu hvers og eins.
Frímúrarar reyna að láta gott af sér leiða gagnvart systkinum sínum og í raun öllum sem á vegi þeirra verða, þeir eru málsvarar heiðarleika, réttlætis og mannréttinda og láta fé sem safnast renna til góðgerðarmála.