Einkunnarorð Alþjóða Samfrímúrarareglunnar eru frelsi, jafnrétti, bræðralag.
Alþjóða Samfrímúrarareglan LE DROIT HUMAIN lýsir yfir jafnrétti óháð kyni, litarhætti og trú. Hún leggur áherslu á trúfrelsi og bræðralag í leit að sannleikanum.
Meðlimum er skylt að virða trúarskoðanir annarra og líta á aðra sem jafningja sína án tillits til þjóðernis, litarháttar eða kynþátta. Þar af leiðandi snúast reglusystkin gegn ofstæki, óréttlæti, ójöfnuði, ofbeldi og kynþáttafordómum.
Alþjóða Samfrímúrarareglan LE DROIT HUMAIN lætur í té sérstaka aðferð, sem meðlimir hennar geta tileinkað sér með því að kynna sér táknfræði frímúrara og helgisiði. Þau tæki eru notuð til þess að leita sannleikans og skilja raunveruleikann, útbreiða hugsjón bræðraþels og þjóna mannkyninu. Til þess að ná þessum markmiðum hafa reglusystkin fullkomið frelsi til eigin skilnings og til að tryggja slíkt frelsi er gerð krafa um tillitssemi og umburðarlyndi.