Aðalfundur SPES Barnahjálp Íslandsdeildar verður í safnaðarheimili Neskirkju MÁNUDAG 2. JÚNÍ KL 18 og verður forseti SPES International, Mme Dominique Luquet, sem er stödd á landinu, gestur á fundinum. Einnig munu Guðný Einarsdóttir og Kristín Hrund Whitehead, sem hafa báðar mikla og góða þekkingu á landinu deila með okkur reynslu sinni og upplífun.
Markmið SPES Alþjóðlegrar barnahjálpar (SPES International) er að veita foreldra- og vegalausum börnum aðstoð í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tryggja að það fé sem safnast verði vel og skynsamlega nýtt í þágu barna á alþjóðavettvangi.
Frumkvæðið að stofnun samtakanna var íslenskt. Njörður P. Njarðvík, prófessor, stofnaði þau ásamt 2 vinum, frönskum og tógóskum árið 2000. SPES hefur kappkostað að hjálpa börnum í Tógó, byggt upp og rekið heimili fyrir börn og ungmenni í höfuðborginni Lomé og í bænum Kpalimé.
Rekstrarfé SPES kemur aðallega frá styrktarforeldrum sem greiða mánaðarlega ákveðna upphæð til framfærslu barns. Styrktarforeldrarnir fá reglulega fréttir af börnunum og tækifæri til að kynnast þeim og tengjast.
Eftir 25 ár af öflugu starfi þarf að virkja nýja kynslóð af styrktarforeldrum og finna leiðir til að fjármagna áframhaldandi aðstoð við börnin í Tógó því fátækt eyðist ekki þrátt fyrir ósk um að svo gæti orðið.