Alþjóða Samfrímúrarareglan LE DROIT HUMAIN

Fréttir

Tímamót

Heiðursstórmeistari Alþjóða Samfrímúrarareglunnar LE DROIT HUMAIN, H.L.Br. Njörður P. Njarðvík fagnaði í dag með ljóðaunnendum útgáfu Heildarsafns ljóða sinni í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð. Ugla sá um útgáfuna. Ólína Þorvarðardóttir skrifar formála að safninu og flutti hugnæma ræðu í útgáfuhófinu. Njörður ávarpaði einnig viðstadda og las nokkur ljóð. Falleg kápumynd bókarinnar er eftir Hildi dóttur hans.

Njörður hefur skilað drjúgu verki á sviði bókmennta og skáldskapar, 32 bækur hafa komið út eftir hann og verk hans hafa verið þýdd á 12 tungumál. Hann hefur sjálfur þýtt 24 bækur. Þá eru ónefnd þau áhrif sem hann hefur haft á nemendur sína á ýmsum skólastigum, en ekki síst í Háskóla Íslands.

Samfrímúrarar samfagna Nirði. Undravert er hve miklu hann hefur komið í verk á sviði bókmennta og skáldskapar ekki síst þegar hugsað er  til alls þess sem hann hefur lagt af mörkum í þágu Alþjóða Samfrímúrarareglunnar og hugsjóna hennar. Hann hefur fórnað henni ómælt af orku, tíma og vinnu sem ber að þakka. Útgáfa bókarinnar markar ákveðin tímamót sem slík en einnig vegna þess að hinn 30 júní nk. verður Njörður níræður. Heill sé okkar ágæta Bróður.

Njörður P. Njarðvík við útgáfu Heildarsafns ljóða hans.

Alþjóðleg frímúrararegla karla og kvenna, LE DROIT HUMAIN notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á ledroithumain.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur