… en útlistum ekki allt sem við gerum. Þannig er leynd um sumt en annað ekki. Við komum saman sem jafningjar, viðurkennum hvert annað eins og við erum og hjálpumst að í sameiginlegri leit að skilningi. Við skilyrðum ekki sannleikann en leitum hans með einföldum verkfærum sem fylgt hafa mannkyni í árþúsundir. Hvert og eitt okkar hefur fullkomið frelsi í þeirri leit en því frelsi myndum við svipta burtu ef eitthvert okkar hefði vald til þess að túlka og setja fram hinar réttu niðurstöður. Leyndin hefur því þann tvíþætta tilgang að veita hugsun frelsi og skapa skilyrði til þess að þannig megi starfa.